Ný stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) hefur verið kjörin fyrir starfsárið 2018-2019. Í stjórninni sitja tíu einstaklingar og tóku fjórir nýir sæti í ár. Stjórnina skipa:

  • Björn Brynjúlfur Björnsson, formaður
  • Vala Hrönn Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Ásdís Kristjánsdóttir
  • Hallur Jónasson
  • Herdís Helga Arnalds
  • Íris Hrannardóttir
  • Lilja Gylfadóttir
  • Magnús Þorlákur Lúðvíksson
  • Sölvi H Blöndal
  • Þórarinn Hjálmarsson

Katrín Amni Friðriksdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra félagsins. Katrín hefur starfað við markaðsmál og ráðgjöf undanfarin ár. Þar áður starfaði hún sem markaðsstjóri Heilsuhússins og Lyfju. Katrín er með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í lúxusstjórnun frá Domus Academy í Mílanó.

Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr formaður félagsins og tekur við því hlutverki af Dögg Hjaltalín. Björn er sjálfstætt starfandi og var áður hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Þar áður starfaði hann fyrir ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Company. Björn er með BS-próf í verkfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í hagfræði frá University of Oxford.