Umræða um jarðeignir erlendra aðila hefur komist í kastljós fjölmiðla í kjölfar þess að greint var frá áformum kínverskra fjárfesta um það að kaupa 1.200 hektara jörð steinsnar frá Geysissvæðinu á 1,2 milljarð króna. Nú hefur alþjóðlega fréttaveitan Bloomberg gert málið að umfjöllunarefni sínu og í grein fréttaveitunnar kemur fram að íslensk stjórnvöld hyggjast herða löggjöf er varðar landareign erlendra aðila á Íslandi.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra segir í samtali við Bloomberg-fréttaveituna að aukning hafi orðið á beiðnum á undanþágu til jarðakaupa. Samkvæmt ráðherranum er verið að undirbúa löggjöf þar sem hert er núverandi löggjöf að því er segir í fréttinni. Eins og sakir standa, þá geta einungis Íslendingar, einstaklingar innan EES, og erlendir aðilar sem hafa búið á Íslandi í fimm ár eða meira, keypt landareign á Íslandi. Útskýrt er að ágreiningur sé helst uppi þegar kemur að undantekningum sem að dómsmálaráðuneytið veitir.

Í gær greindi Fréttablaðið frá því að dómsmálaráðherra hafi veitt erlendum ríkisborgurum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) undanþágu til jarða- eða fasteignakaupa í níu tilvikum á þessu ári. Átta þessara ellefu umsókna voru frá Bandaríkjunum, en tveimur þeirra var hafnað. Ein kom frá Nýja-Sjálandi, ein frá Kanada og ein frá Ástralíu.

Slæmt fyrir erlenda fjárfestingu

Rætt er við Ásgeir Jónsson, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, í frétt Bloomberg. Þar er haft eftir hagfræðingnum að allar hömlur hafi neikvæð áhrif á erlenda fjárfestingu. Hann bendir á að ef litið er til ferðaþjónustu, þá er nauðsynlegt að eiga landareign eða fasteign til þess að geta tekið þátt í geiranum hér á Íslandi.

Hann leggur áherslu á að skýrleiki og fyrirsjáanleiki séu það mikilvægasta þegar kemur að lagasetningu. „Öllum fjárfestum mislíkar óvissa og lagabreytingar,“ bætti Ásgeir Jónsson við.

Lokað á kínverska fjárfestingu í annað sinn

Í greininni er enn fremur stuttlega rifjuð upp sagan af því þegar Ísland skellti í lás á kínverska fjárfestan Huang Nubo árið 2012. Nubo hafði áhuga á því að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum í Norðurþingi. Þar vildi Nubo byggja fimm stjarna hótel og átján holna golfvöll og var gert ráð fyrir því að heildarfjárfestingin á svæðinu væri á bilinu 10 til 20 milljarðar króna. Í kjölfarið sótti kínverski fjárfestirinn um undanþágu frá innanríkisráðuneytinu. Þremur mánuðum eftir að tilkynnt hafi verið um kaupin þá var kveðinn upp sá úrskurður að Nubo fengi ekki að kaupa jörðina . Ögmundur Jónasson var þá innanríkisráðherra.