Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið greindur með Covid-19.

Forsætisráðherrann er sagður einkennalítill og muni áfram leiða aðgerðir stjórnvalda vegna faraldursins úr einangrun í Downing-stræti.

Samkvæmt talsmanni forsætisráðuneytisins fann Boris fyrir mildum einkennum í gærdag, og var í kjölfarið skimaður fyrir veirunni samkvæmt ráðleggingum læknis.