Brandenburg var valin auglýsingastofa ársins á ráðstefnu ÍMARK , sem haldin var á Grand hótel Reykjavík í gær. Þetta er í fjórða sinn sem stofan hlýtur nafnbótina og sem fyrr eru það markaðsstjórar íslenskra fyrirtækja sem kjósa.

„Þetta er sannkallaður heiður,“ segir Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Brandenburgar . „Ég er stoltur af starfsfólki stofunnar sem hefur lagt mikið á sig á krefjandi tímum og öllum okkar frábæru viðskiptavinum. Það er sérstaklega gleðilegt að sjá að við erum ekki aðeins að mælast hæst fyrir það sem snýr að árangursdrifnum hugmyndum. Aukin áhersla á ráðgjöf, stefnumótun og vörumerkjastrategíu er líka að skila sér því við skorum hæst í öllum þáttum sem liggja matinu til grundvallar í valinu á auglýsingastofu ársins.

Þetta er búið að vera viðburðaríkt ár og við merkjum aukin umsvif á meðal okkar viðskiptavina. Það er margsannað í rannsóknum að við svona aðstæður þarf að setja aukinn kraft í markaðsmálin til að ná árangri. Þannig að við erum bjartsýn fyrir næsta ár enda trúum við því að það verði alltaf eftirspurn eftir góðum hugmyndum. Svo má líka bæta því við að Brandenburg er að verða 10 ára svo þessi nafnbót kemur á skemmtilegum tíma.“

Hjá Brandenburg starfa tæplega 40 sérfræðingar á sviði vörumerkjaráðgjafar, hönnunar, hugmyndavinnu og textagerðar auk þess að sjá um samfélagsmiðla, birtingar og ráðgjöf gegnum snjallbirtingafyrirtækið Datera.