Gildi lífeyrissjóður hefur liðkað fyrir lánareglum sínum vegna mikilla uppgreiðslna lána hjá sjóðnum.

Meðal þeirra breytinga sem stjórn sjóðsins tók ákvörðun um á fundi sínum fimmtudaginn 21. janúar síðastliðinn er að hækka veðhlutfall lána í 75% en það var 70% áður. Eftir breytinguna fá sjóðfélagar grunnlán fyrir allt að 65% af virði eignar í stað 60% áður. Ofan á það geta sjóðfélagar fengið viðbótarlán upp í 75% af virði eignar.

Óverðtryggðir breytilegir vextir er jafnframt lækkaðir um 20 punkta og segir lífeyrissjóðurinn í fréttatilkynningu að þar með séu vaxtakjör óverðtryggðra lána hjá Gildi ein þau allra bestu sem í boði eru. Verðtryggðir breytilegir vextir eru jafnframt lækkaðir um 10 punkta.

Breytingin á veðhlutfalli lána hefur þegar tekið gildi en ný vaxtatafla, sem sjá má hér að neðan, mun taka gildi 5. febrúar næstkomandi:

Lífeyrissjóðir hafi leitt betri lánakjör

Í tilkynningu bankans segir að síðustu mánuði hafi uppgreiðslur lána hjá lífeyrissjóðum verið talsvert umfram nýjar lánveitingar. Með breytingunni á lánareglum og vaxtakjörum nú vill stjórn Gildis bregðast við þessari þróun.

Landsmönnum hafa síðustu ár boðist lán á allt öðrum og betri kjörum en áður þekktist og segir sjóðurinn að það megi að stærstum hluta rekja til sterkrar innkomu lífeyrissjóða á lánamarkaðinn á árunum 2015 til 2016.

Síðustu mánuði hafa bankarnir náð að bregðast við, lækkað vexti á lánum sínum, og orðið ráðandi á fasteignalánamarkaði á ný. Með breytingunni nú vill Gildi bregðast við þessari þróun og bjóða upp á lán á kjörum sem eru að fullu samkeppnishæf.

Breytingin gefur kost á hærri lántöku sem sérstaklega mun koma fyrstu kaupendum íbúða, yngra fólki og tekjulágu, til góða segir jafnframt í tilkynningunni. Þar segir einnig að reynslan sýni að veðlán séu hagkvæmur eignaflokkur í eignasafni Gildis og þar fari saman hagsmunir sjóðfélaga og lántakenda.