Ásdís Kristjánsdóttir, sem áður gegndi starfi forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka Atvinnulífsins (SA), hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri SA og tekur við af Hannesi G. Sigurðssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1991. Hannes mun starfa áfram hjá SA sem ráðgjafi stjórnar og framkvæmdastjórnar.

Ásdís Kristjánsdóttir hefur starfað sem forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins undanfarin sex ár og byggt sviðið upp frá grunni. Hún hefur áður starfað sem forstöðumaður greiningardeildar Arion banka og hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu.

Ásdís er með BS gráðu í iðnaðarverkfræði og MS gráðu í hagfræði og hefur auk þess réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari.

Anna Hrefna ráðin forstöðumaður efnahagssviðs

Anna Hrefna Ingimundardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður efnahagssviðs SA og tekur við af Ásdísi.

Anna Hrefna hefur starfað sem efnahagsgreinandi, bæði innanlands og erlendis. Hún hefur unnið við sérhæfðar fjárfestingar hjá Eldhrímni ehf. frá árinu 2018. Þar áður starfaði hún sem efnahagsgreinandi hjá greiningardeild Arion banka og sem lánastjóri á fyrirtækjasviði bankans. Áður starfaði Anna við greiningar á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum.

Anna Hrefna er með BA gráðu í hagfræði frá New York University og MA gráðu í hagfræði frá sama skóla. Hún hefur auk þess réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari.

Védís Hervör ráðin miðlunarstjóri

Þá hefur Védís Hervör Árnadóttir verið ráðin sem miðlunarstjóri SA, sem er ný staða innan samtakanna, og mun leiða stefnumörkun í markaðs- og miðlunarstarfi og styrkja stafræna þróun samtakanna.

Védís Hervör Árnadóttir kemur til SA frá Viðskiptaráði Íslands þar sem hún starfaði sem samskipta- og miðlunarstjóri í fjögur ár. Áður var hún markaðs- og kynningarstjóri hjá Raddlist og Vinun.

Védís Hervör hefur fjölbreytta reynslu af framleiðslu, rekstri og stefnumótun í frumkvöðlageiranum. Hún er einn stofnenda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist á Íslandi og kvikmyndafyrirtækisins Freyja Filmwork. Þá er hún varaformaður Félags tónskálda og textahöfunda og varamaður í stjórn Leikfélags Reykjavíkur.

Védís Hervör er með alþjóðlega meistaragráðu í rekstri og stjórnun (MBA) frá HR, BA gráðu í mannfræði frá HÍ og diplóma í verkefnastjórnun. Þar áður nam hún upptökustjórn og hljóðblöndun í Point Blank London Music College.

„Við þökkum Hannesi fyrir afburða gott og árangursríkt starf í þágu íslensks atvinnulífs og samfélags sem aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann hefur markað djúp spor í þróun íslensks vinnumarkaðar og kjararannsókna sem burðarás hjá VSÍ og SA í 35 ár. Við fögnum því að fá að njóta krafta hans áfram,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdarstjóri SA, í fréttatilkynningu SA.

„Ásdís Kristjánsdóttir tekur nú við stöðu hans en ásamt henni fáum við inn fleira öflugt fólk sem eru þær Anna Hrefna Ingimundardóttir og Védís Hervör Árnadóttir. Þá verður til ný staða í miðlun og stafrænum lausnum en með því viljum við leggja áherslu á nýtingu stafrænna lausna til þess að auka gagnsæi og bæta upplýsingamiðlun til félagsmanna um land allt.“

„Framundan eru verulegar áskoranir fyrir íslenskt atvinnulíf. Með þessum ráðningum styrkist enn frekar öflugt teymi SA og þjónusta við félagsmenn okkar hringinn í kringum landið er aukin.“