Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hélt í vikunni matsfundi innan fyrirtækisins þar sem endurskoðað var lánshæfismat á langtímaskuldbindingum í innlendum gjaldmiðli fyrir lönd þar sem mismunur er á langtímaeinkunn í erlendum og innlendum gjaldmiðli.

Endurskoðunin er til þess fallin að gæta samræmis vegna breytinga á viðmiðum fyrir lánshæfi. Samhliða breytingunni var gefið út nýtt lánshæfismat fyrir skammtímaskuldbindingar í innlendum gjaldmiðli.

Fitch lækkað lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í innlendum gjaldmiðli til samræmis við einkunn fyrir langtímaskuldbindingar í erlendum gjaldmiðli í BBB+ með stöðugum horfum.

Einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum gjaldmiðli er staðfest F2. Lánshæfiseinkunn fyrir langtímaskuldbindingar í erlendum gjaldmiðli er BBB+ með stöðugum horfum eins og staðfest var hinn 15. júlí sl. Einkunn Ríkissjóðs Íslands er áfram rökstudd með öflugum efnahagslegum grunnstoðum, bættum horfum í ríkisfjármálum, ytri stöðu og sterku stofnanakerfi.

Samsvarandi breyting verður gerð á lánshæfismati annarra landa, eins og fram kemur í fréttatilkynningu félagsins.