British Airways hefur tilkynnt um að flugfélagið mun bæta við flug sitt til Íslands. Mun flugfélagið fljúga tvisvar sinnum á viku til Íslands frá Lundúnum til Reykjavíkur. Þetta kemur meðal annars fram á vefsíðu flugfélagsins .

Í frétt Business Traveller um málið er haft eftir Luke Hayhoe hjá British Airways að Reykjavík sé álitin frábær staður til afþreyingar og frábær staður til að upplifa stórbrotið landslag og til að fara á skíði yfir vetrartímann.

Flogið verður frá 29. október 2017 til 18. mars 2018 tvisvar á viku. Verðið til Reykjavíkur er 59 pund eða það sem jafngildir ríflega 8 þúsund krónum.