Búast má við umferðartöfum á Kringlumýrarbraut dagana 12. til 26. september þegar endurnýjuð verður stofnlögn kalds vatns frá lokahúsi við Stigahlíð og yfir Kringlumýrarbraut. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Veitum.

Hafist verður handa við þverun götunnar í fyrramálið, þriðjudaginn 12. september. Á meðan á framkvæmdum stendur verður verulega þrengt að umferð en þó verða ætíð opnar akreinar í báðar áttir. Er ökumönnum á þessari leið bent á að gera ráð fyrir auknum ferðatíma og fara aðrar leiðir sé þess kostur.