Stjórnendur um fjórðungs 400 stærstu fyrirtækja landsins telja líklegt að þau muni fækka starfsfólki næsta hálfa árið. Um 13% þeirra finna fyrir skorti á starfsfólki sem er svipað og fyrir ári síðan. Á það helst við um ýmsa sérhæfða þjónustu. Um 14% fyrirtækjanna búast við fjölgun starfsmanna.

Þetta er meðal niðurstaðna Gallup könnunar fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins. Könnunin gefur þó til kynna óbreytt umsvif í atvinnulífinu á næstunni.

Mat stjórnenda á núverandi stöðu í atvinnulífinu er sæmilegt og væntingar um að staðan versni ekki mikið á næstu sex mánuðum. Könnunin hefur verið gerð ársfjórðungslega frá árinu 2006.

Fækkunin gæti numið 600 störfum

Lítill skortur er á starfsfólki á almennum vinnumarkaði og útlit fyrir áframhaldandi fækkun starfa næstu sex mánuði. Ætlar SA að fækkunin muni nema 0,5% á tímabilinu sem er sama niðurstaða og fyrir þremur mánuðum.

Um 24 þúsund starfsmenn vinna hjá fyrirtækjunum sem taka þátt í könnuninni, en sé niðurstaðan yfirfærð á allan almenna markaðinn gæti störfum fækkað um rúmlega 600. Það miðast þá við fjölgun um tæplega 1.100 hjá fyrirtækjum sem áforma fjölgun en fækkun um rúmlega 1.700 hjá þeim sem áforma fækkun.

Stefnir í mestu fækkunina í byggingargeiranum og verslun, en fækkun virðist framundan í flestum atvinnugreinum nema ýmissi sérhæfðri þjónustu.

Stjórnendur vænta óbreyttrar eftirspurnar á innlendum markaði en aukinni eftirspurn á erlendum mörkuðum. Búast 22% stjórnenda við aukningu innlendrar eftirspurnar, 19% búast við samdrætti en aðrir óbreyttri eftirspurn. Á erlendum mörkuðum búast 32% stjórnenda við aukinni eftirspurn en 13% við samdrætti.

Verðbólguvæntingar stjórnenda eru við markmið Seðlabankans, þ.e. 2,5% næstu 12 mánuði, en eftir tvö ár búast þeir við að verðbólgan verði 3,0%.