Ísland þarf að breyta reglum sem skylda stjórnarmenn og framkvæmdastjórn félaga til að vera ríkisborgarar eða búsettir í EES ríki. Þetta fellst í rökstuddu áliti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem birt var í dag.

Samkvæmt íslenskum lögum og reglum þurfa framkvæmdastjórar og stjórnarmenn félaga með staðfestu á Íslandi að vera annaðhvort ríkisborgarar EES ríkis eða búsettir í slíku ríki. Að mati ESA takmarkar Ísland frelsi annarra EES ríkja til þess að ákveða með frjálsum hætti hvernig stjórn félaga í ríkjum þeirra skuli skipað. Skilyrðin geti þvingað fyrirtæki til að breyta samsetningu framkvæmdastjórnar eða stjórnar.

„Þessi skilyrði skapa einnig takmarkanir fyrir félög annarra EES ríkja sem vilja hefja starfsemi á Íslandi í gegnum skrifstofur, útibú eða dótturfélög, enda geta þau ekki valið stjórn með frjálsum hætti og skipað þá einstaklinga sem þau helst kjósa sér,“ segir í tilkynningu frá ESA. „Ríkisborgararéttur og búsetuskilyrði eru almennt ekki viðeigandi gildi til þess að meta hæfi og getu framkvæmdastjórnar og stjórnarmanna. Af þeirri ástæðu eru til staðar strangar reglur innan EES réttar ásamt athugunum fyrir slíka einstaklinga í viðkvæmum geirum líkt og fjármálageiranum.“

Athugun ESA hófst í nóvember 2015. Verði ekki brugðist við rökstudda álitinu innan tveggja mánaða er viðbúið að eftirlitsstofnunin muni vísa málinu til EFTA dómstólsins.