Mannréttindadómstóll Evrópu mun kveða upp dóm í máli Geirs Haarde, fyrrum forsætisráðherra, gegn íslenska ríkinu á fimmtudaginn. Geir áfrýjaði dómi Landsdóms frá árinu 2012 til Mannréttindadómstólsins þar sem hann var sakfelldur fyrir að halda ekki ríkisstjórnarfundi um mikilvæg mál í aðdraganda falls íslensku viðskiptabankanna.

Geir ber fyrir sig að hann hafi verið sakfelldur fyrir brot á reglum sem hafi ekki verið nægilega skýrar og uppfylli ekki kröfur um skýrleika refsiheimilda.

Einnig hafi hann ekki fengið réttláta málsmeðferð þar sem ákvörðunin um málshöfðun hafi verið á pólitískum grundvelli.

Í dómi Landsdóms var Geir sýknaður af þremur ákæruliðum en sakfelldur í einum lið líkt og Viðskiptablaðið hefur fjallað um . Hann var sakfelldur fyrir að framkvæma ekki það sem fyrirskipað er í 17. grein stjórnarskrárinnar um skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarfmálefni. Geir var þó ekki gerð nein refsing og ríkissjóði var gert að greiða málskostnað hans.

Geir sagði við tilefnið að hann hefði unnið 95% sigur en einnig að hann í hugaði að kæra málið til Mannréttindadómstólsins sem hann og gerði.