Sendingar DHL Express Iceland hagnaðist um 45 milljónir árið 2015. Hagnaðurinn jókst frá árinu á undar þegar hann nam 36 milljónum.

Framlegð félagsins á árinu 2015 nam 591,4 milljónum samanborið við 529,5 milljónum árið 2014. Handbært fé félagsins í lok árs 2015 nam 384,6 milljónum og hækkar milli ára.

DHL Express Iceland er að fullu í eigu Deutsche Post International B.V. sem er hluti af samstæðu Deutsche Post AG.