Í dag kl. 16.00 fer fram hluthafafundur í VÍS þar sem kosið verður í aðal- og varastjórn félagsins.

Í tilkynningu Ólafar Hildar Pálsdóttur til VÍS kemur fram að hún hafi ákveðið að draga framboð sitt til aðalstjórnar félagsins tilbaka en hún bauð sig eingöngu fram til aðalstjórnar.

Í tilkynningu Sveins Friðriks Sveinssonar til VÍS kemur fram að hann hafi ákveðið að draga framboð sitt tilbaka til aðalstjórnar félagsins, en gefur áfram kost á sér í varastjórn félagsins.