Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,2% í júnímánuði og stendur nú 576 stigum samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands . Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 4,3, síðastliðna 6 mánuði um 11,7% og síðastliðna 12 mánuði hefur hún hækkað um 21,2%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.