Vogunarsjóðurinn Eaton Vance Management á nú meira en 5% hlut í smásölufyrirtækinu Högum. Eaton Vance á hlut í högum í gegnum sex fjárfestingarsjóði sína. Þetta kemur fram í flöggun til Kauphallarinnar . Samkvæmt tilkynningunni á sjóðurinn 59.997.036 hluti í Högum eða 5,12% hlut.

Sjóðirnir sex eru eftirfarandi: Global Opportunities Portfolio, Global Macro Portfolio, Global Macro Absolute Return Advantage Portfolio, JNL Eaton Vance Global Macro Absolute Return Advantage Fund, Pacific: IGPACSEL/Pacific Select Fund Global Absolute Return Fund og PF Global Resolute Return Fund. Sjóðirnir sex fóru yfir 5% mörkin þann 19. júni síðastliðinn.

Sjóðurinn eykur umsvif sín á Íslandi

Í umfjöllun Viðskiptablaðsins um aukin umsvif erlendra sjóða hér á Íslandi kemur fram að þá hafi sjóðir á vegum Eaton Vance átt hlutafé í íslenskum félögum fyrir að minnsta kosti 15 milljarða króna í níu félögum. Það er nærri tvöföldun frá afnámi hafta og þá er ekki meðtalinn mögulegur hlutur þeirra í Icelandair, sem gæti hæglega numið hundruðum milljóna króna eða meira. Nýverið tæplega þrefaldaði sjóðurinn hlut sinn í tryggingafélaginu VÍS þegar einn af stærstu eigendunum, Grandier ehf., seldi allan hlut sinn. Á hann nú 8,7% hlut í VÍS og er nú næst stærsti hluthafinn á eftir Lífeyrissjóði verzlunarmanna.