Egilshallarbíó sem er í eigu Sam-félagsins ehf., tapaði 8,5 milljónum árið 2015. Það er nokkuð skárri afkoma en árið áður, þegar kvikmyndahúsið tapaði rúmum 23 milljónum.

Rekstrartap Egilishallarbíós fyrir fjármagnsliði nam tæpum 8,7 milljónum árið 2015 samanborið við 23,4 milljónum árið áður.

Eigið fé félagsins var neikvætt um 19,8 milljónir í lok árs 2015. Á sama tíma árið áður var það einnig neikvætt en um 11,3 milljónir. Eignir Egilshallarbíó voru verðmetnar á 28,8 milljónir í lok árs 2015 en skuldir félagsins á 48,6 milljónir.

Í upphafi árs 2016 var hlutafé félagsins aukið um 20 milljónum króna, segir í rekstrarreikningi félagsins.

Framkvæmdastjóri Egilshallarbíós er Björn Ásberg Árnason.