Lífeyrissjóður verzlunarmanna, eigandi 13,3% hlutafjár í N1, lýsir undrun sinni á ákvörðun stjórnar N1 um launahækkun forstjóra félagsins. Sjóðnum var ekki kunnugt um þessa launahækkun fyrr en upplýsingar birtust í ársreikningi félagsins og í fjölmiðlum.

Með launatengdum gjöldum námu laun hans á síðasta ári um 5,9 milljónum á ári, eins og fram kom í Viðskiptablaðinu í gær. Á sínum tíma þegar Eggert var ráðinn talaði hann um sjálfan sig sem ódýra forstjórann .

Í starfskjarastefnu N1 hf. kemur fram að kjör forstjóra skuli vera samkeppnishæf og taka mið af hæfni, ábyrgð og umfangi starfans. Lífeyrissjóðurinn telur það orka mjög tvímælis hvort fjárhæð launa forstjóra og hækkun þeirra samræmist þessum viðmiðum og þeim sjónarmiðum sem hluthafastefna sjóðsins byggir á.