Eignaumsjón og HS Orka hafa gert með sér samkomulag um raforkuviðskipti sem skilar viðskiptavinum Eignaumsjónar föstum afslætti af smásöluverði við kaup á raforku frá HS Orku.

Samningurinn, sem hefur þegar tekið gildi, nær til raforkunotkunar í sameignum allra húsfélaga sem nýta sér þjónustu Eignaumsjónar. Jafnframt geta nýtt sér þessi afsláttarkjör eigendur íbúða eða eignarhluta í fjöleignahúsum, atvinnuhúsum og öðrum fasteignum sem eru í viðskiptum við Eignaumsjón.

Eignaumsjón annast heildarþjónustu við rekstur atvinnu- og íbúðarhúsnæðis á öllu landinu. Félagið hefur sérhæft sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög um fasteignir og býður upp á heildarlausnir í rekstri fjöleignarhúsa með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari, hagkvæmari og ódýrari, auka upplýsingaflæði og auðvelda störf eigenda og hússtjórna. Eignaumsjón annast rekstur um 400 húsfélaga, rekstrarfélaga og atvinnuhúsnæðis.

Sem dæmi um ávinning af samkomulaginu er stórt húsfélag (174 íbúðir) í nýlegu húsi að spara sér um 250.000 krónur á ársgrundvelli frá því sem áður var, við kaup á rafmagni vegna sameignar húsfélagsins. Fyrir millistórt húsfélag (55 íbúðir) í nýlegu húsi skilar samningurinn um 100.000 króna sparnaði á ári við kaup á rafmagni vegna sameignar húsfélagsins.

Eigendur einstakra íbúða eða eigna sem tilheyra húsfélagi eða atvinnuhúsnæði sem er í þjónustu hjá Eignaumsjón, alls um 9.300 íbúðir/eignir, geta einnig orðið þátttakendur í þessu samkomulagi félaganna. Þeim sem það kjósa stendur til boða að fá sömu afsláttarkjör á rafmagni til eigin nota hjá HS Orku, svo lengi sem viðkomandi húsfélag sem þeir tilheyra er í þjónustu hjá Eignaumsjón.

Afsláttarkjör Eignaumsjónar og HS Orku gilda einvörðungu um kaup á almennri, óskerðanlegri raforku en ekki um raforkuflutning. Samningurinn gildir til ársloka 2018 og endurnýjast sjálfkrafa til tveggja ára í senn, nema honum sé sagt upp með lögformlegum hætti.

Eignaumsjón hefur áður gert afsláttarsamninga, svo sem við öryggisfyrirtæki, iðnaðarfyrirtæki og ræstingarfyrirtæki. Samningarnir lækka kostnað og skila húsfélögum og íbúum þeirra sparnaði í daglegri þjónustu.