Eimskip hefur flutt aðalskrifstofur sínar og starfsemi dótturfélagsins TVG-Zimsen í skrifstofurými Vöruhótels félagins við Sundahöfn. Félagið var áður með þessa starfsemi hinum megin við götuna í Korngörðum 2. Skrifstofufermetrum fækkar um 3.200 fermetrum.

Í fréttatilkynningu Eimskips segir að félagið hefur verið á stafrænni vegferð síðustu misseri sem styður við þessar breytingar. Skrifstofurými sem áður var í Vöruhótelinu hefur verið endurbætt og býður upp á sveigjanleika en starfsfólk mun geta valið sér vinnuaðstöðu sem hentar þeirra verkefnum hverju sinni.

Nú sameinast höfuðstöðvareiningar félagsins á einum stað sem styttir boðleiðir og þar með snerpu í þjónustu við viðskiptavini, segir í tilkynningunni.