Eimskipafélag Íslands auglýsti nýlega til sölu gömlu höfuðstöðvar félagsins við Korngarða 2 í Sundahöfn. Uppsett verð er 890 milljónir króna, en húsnæðið er alls 3.200 fermetrar á 5.080 fermetrar lóð. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið byggt árið 2000 og fasteignamat þess er 924 milljónir króna en brunabótamat 1,3 milljarðar.

Í fasteignaauglýsingu kemur fram að um í húsinu sé á tveimur hæðum með fjöldi vinnurýma og fundarherbergjum en auðvelt sé að aðlaga rýmin að margvíslegri starfsemi.

Eimskip flutti á síðasta ári aðalskrifstofur félagsins og dótturfélagsins TVG-Zimsen yfir götuna við Sundahöfn.