Einar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Hábrúnar í Hnífsdal en fyrirtækið starfrækir regnbogasilungseldi í Skutulsfirði og fiskvinnslu í Hnífsdal. Hjá fyrirtækinu starfa nú 17 manns og er það eitt elsta starfandi sjókvíaeldisfyrirtæki á Íslandi með nærri tveggja áratuga reynslu af eldi við Ísafjarðardúp.

Einar Guðmundsson er fertugur að aldri, fæddur og uppalinn í Bolungarvík og nýútskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Hann er með sveins próf í rafvirkjun, stúdentspróf frá Frumgreinadeild HR, auk vélstjóra- og skiptstjórnarréttinda.

Einar hefur starfað sem skipstjóri síðustu tíu ár ásamt því að reka útgerð með fjölskyldu sinni í Bolungarvík. Frá 2014 hefur hann verið skipstjóri á Ásdís ÍS 2 en á árunum 2014 til 2016 var hann framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Sigurbjargar og Völusteins ehf. Þar áður var hann skipstjóri á Einar Hálfdáns ÍS, og sölumaður hjá Bílasölu Reykjavíkur.

Einar situr í stjórn Fiskmarkaðs Vestjarða og var formaður hafnarstjórnar Bolungarvíkur í fjögur ár. Einnig hefur hann setið í stjórn Hábrúnar síðustu tvö árin og er hann sagður hafa þekkingu á rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi í tilkynningu félagsins og því passa einkar vel inn í starfsmannahóp Hábrúnar sem sér fram á meiri vöxt fyrirtækisins innan fárra ára.

Hafa sótt um leyfi til verulegrar stækkunar eldisins

Aðrir lykilstarfsmenn Hábrúnar eru Davíð Kjartansson, rekstrarstjóri, Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, sölustjóri, og Ásgeir Sólbergsson, skrifstofustjóri. Hluthafahópur Hábrúnar samanstendur einkum af heimamönnum og öðrum fjárfestum sem hafa sterk tengsl vestur á firði.

Regnbogasilungseldi Hábrúnar nær aftur til ársins 2013 þegar fyrstu seiðin fóru í sjó en veruleg framleiðsluaukning varð árið 2017. Eldið byggir þó á áratugalangri reynslu af sjókvíaeldi við Ísafjarðardjúp, einkum þorskeldi.

Hábrún er með leyfi fyrir 700 tonna eldi af regnbogasilungi en hefur jafnframt sótt um leyfi Skipulagsstofnunar til verulegrar stækkunar til að styrkja stoðir fyrirtækisins enn frekar.

Líkt og hjá flestum fyrirtækjum í sjávarútvegi reyndist síðasta ár mjög krefjandi fyrir Hábrún vegna Covid-19 segir einnig í tilkynningu félagsins en það segist jafnframt standa í dag fastari fótum og og sala þess hafi verið nokkuð góð undanfarið þrátt fyrir krefjandi tíma.