Nýhafið samstarf Smartmedia og Póstsins felst í því að vefþjónusta Póstsins er nú beintengd við netverslunarkerfi Smartmedia. Í fréttatilkynningu frá Póstinum segir að þessi tenging einfaldi viðskiptavinum Smartmedia verulega ferlið við að koma vörum áfram til viðskiptavina sinna.

Smartmedia er fyrirtæki í hugbúnaðarlausnum og var stofnað árið 2008 en netverslunarkerfi fyrirtækisins hefur verið í mikilli þróun undanfarin ár. Núna í dag keyra 140 íslensk fyrirtæki netverslun sína á kerfi Smartmedia. Pósturinn hefur undanfarið lagt mikla vinnu í að þróa lausnir fyrir netverslanir og segir í tilkynningunni að möguleiki fyrirtækja til

að tengjast beint við skráningarkerfi Póstsins sé mjög góð viðbót. Þannig skila allar upplýsingar sér strax í kerfi Póstsins og það auðveldi netverslunum að halda utan um allar sendingar sem þær senda viðskiptavinum sínum á einum stað.

„Við erum mjög ánægð með að fara í þetta samstarf með Póstinum. Með því að bæta við þessum valmöguleika fyrir okkar viðskiptavini erum við að auðvelda þeim mjög sendingarhlutann í ferlinu. Við hjá Smartmedia erum stórir á íslenskum netverslunarmarkaði og viljum bjóða upp á framúrskarandi þjónustu við okkar viðskiptavini og þetta samstarf okkar við Póstinn styður undir það,“ segir Hjörvar Hermannsson, framkvæmdastjóri Smartmedia.

„Það er mjög gaman að fá að taka þátt í þessu verkefni með Smartmedia. Netverslunarkerfið þeirra er gríðarlega einfalt og þægilegt í notkun en þessi viðbót gerir það að verkum að viðskiptavinir Smartmedia geta nú með einföldum hætti skráð sendingar inn í kerfi Póstsins á einum stað,“ segir Elvar Bjarki Helgason, forstöðumaður söludeildar Póstsins.