Elísabet Sveinsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri drykkja hjá Ölgerðinni. Elísabet hefur starfað við markaðsmál um árabil, gegndi stöðu forstöðumanns markaðssviðs Advania og leiddi endurmörkun fyrirtækisins.

Hún hefur um árabil verið í fremstu röð markaðsfólks á Íslandi, meðal annars formaður ÍMARK til nokkurra ára. Þá gegnir hún formennsku í Félagi háskólakvenna og kvenstúdenta um þessar mundir.

Á starfsferli sínum hefur hún stýrt markaðsmálum hjá Íslandsbanka, unnið að stofnun nýs sviðs innan Icelandair og stýrt tónlistarhúsinu Salnum í Kópavogi, svo eitthvað sé nefnt. Þá vann hún um skeið sem fréttamaður á fréttastofu RÚV.

Elísabet hefur látið til sín taka í ýmis konar sjálfboðastörfum og hefur, ásamt samstarfskonum sínum, leitt átakið „ Á allra vörum “ sem á síðustu árum hefur staðið fyrir myndarlegum landsöfnunum.

Elísabet er með MBA-próf frá Háskóla Íslands og próf í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla. Þá stundaði hún nám í Rockford University í Bandaríkjunum að stúdentsprófi loknu.