Í gærkvöldi gaf Ellen DeGeneres 150 áhorfendum í sérstökum jólaþætti sínum, “Ellen’s Greatest Night of Giveaways”, flugmiða með Icelandair til Íslands fyrir tvo, gistingu í fimm daga á Icelandair hótelum og ferð í Bláa Lónið.

Stjónvarpsstjarnan og fyrirsætan Chrissy Teigen aðstoðaði Ellen að afhenda gjafirnar. Þátturinn var sýndur á besta tíma á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC.

Jólaþættirnir, “Ellen’s Greatest Night of Giveaways”, eru þrír talsins og er líklegt að um 10 milljónir manna horfi á hvern þátt og uppsafnað áhorf nái til 25-30 milljónir manna.

Ellen nýtur mikilla vinsælda og er með um 80 milljónir fylgjendur á Twitter og Instagram, og ríflega 30 milljónir á Facebook og Youtube , og má því leiða líkum að þetta sé góð landkynning. Undirbúningurinn fyrir þetta innlegg í þáttinn var unnið með Íslandsstofu.