Starfshópur sem fjármálaráðherra hefur skipað til að endurskoða umgjörð gjaldeyrismála mun meðal annars fara yfir lög um annars vegar gjaldeyrismál og hins vegar um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum. Auk þess tekur hópurinn til endurskoðunar þær reglur sem settar hafa verið á grundvelli beggja lagana.

Formaður starfshópsins er Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofur fjármálamarkaðar í fjármála- og efnahagsráðuneyti. Með henni starfa í hópnum Tinna Finnbogadóttir, hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti; Sigurður Páll Ólafsson, hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti; Rannveig Júníusdóttir, forstöðumaður, tilnefnd af Seðlabanka Íslands; Andri Egilsson, sérfræðingur, tilnefndur af Seðlabanka Íslands.

Í tilkynningu um skipun hópsins á vef Stjórnarráðsins segir að nú þegar stjórnvöld hafi afnumið fjármagnshöft sé tímabært að leggja mat á hvaða meginsjónarmið skuli hafa að leiðarljósi um gjaldeyrismál á Íslandi. „Verður starfshópnum m.a. falið að skoða hvort sérstaða íslenska hagkerfisins og íslenskra markaða kalli á úrræði í löggjöf sem sníða þarf stakk innan þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem Ísland er bundið af,“ segir í tilkynningunni.

„Starfshópurinn skal taka mið af íslenskum aðstæðum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands við verkefnið. Er þar átt við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið sem Ísland varð skuldbundið af árið 1994 og samþykktir Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um frelsi þjónustuviðskipta og fjármagnshreyfinga sem Ísland hefur verið aðili að frá árinu 1961. Ennfremur hafa stjórnvöld hér á landi tekið tillit til almennra og sértækra leiðbeininga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um flæði fjármagns.

Við vinnu starfshópsins ber einnig að horfa til og draga lærdóm af þeirri reynslu sem fengist hefur við framkvæmd laga um gjaldeyrismál á undanförnum árum. Starfshópnum er falið að skila ráðherra drögum að lagafrumvarpi til nýrra heildarlaga um gjaldeyrismál, og eftir atvikum nauðsynlegum breytingum á öðrum lögum, eigi síðar en í júní 2020.“