Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segist ekki hafa áhyggjur af því að möguleg vinstristjórn án Framsóknar, en með Flokki fólksins í staðinn, verði of tæp.

Slík stjórn hefði einungis 32 þingmenn að baki sér, eða eins manns meirihluta, líkt og ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sem felldi ríkisstjórnina og féll í kjölfarið af þingi. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá um helgina hittust þau Logi og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins um helgina.

Logi hafði áður sagt stefnu Flokks fólksins í málefnum flóttamanna og hælisleitenda glannalega og forsenda slíks samstarfs vera að flokkurinn hyrfi frá stefnu sinni í þeim málefnum að því er fram kemur á mbl , en Inga Sæland hafði til að mynda hrósað Sigríði Andersen dómsmálaráðherra fyrir reglugerðarbreytingar sem flýttu meðferð tilhæfulausra umsókna um hæli niður í þrjá sólarhringa .

Logi segir hins vegar Samfylkingu og Flokk fólksins eiga samleið þegar kemur að þeim sem minna mega sín í samfélaginu en eftir fundinn þar sem hann segir útlendingamál hafa borið á góma segist hann nú hafa sannfærst um að flokkarnir væru sammála um margt í þeim málaflokki.

„En við munum ekki gefa neinn afslátt af okkar stefnu þar,“ segir Logi og gagnrýnir um leið stefnu Sjálfstæðisflokksins í málefnum hælisleitenda, en eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um hefur áðurnefnd ákvörðun dómsmálaráðherra náð að draga umtalsvert úr umsóknum um hæli hér á landi „Mér hefur nú sýnst vera nokkuð frjálst skotleyfi í Sjálfstæðisflokknum í þessum málum.“