Forseti Íslands hefur sent frá sér tilkynningu um að leiðtogar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri Grænna hafi hafið formlegar viðræður um myndun ríkisstjórnar. Athygli vekur að ekki er tilgreint um að neinn flokkur hafi fengið stjórnarmyndunarumboð frá forsetanum. Í tilkynningunni segir jafnframt að í lok vikunnar sé fregna að vænta um hvort viðræðurnar skili tilætluðum árangri. Hér að neðan má lesa tilkynninguna í heild sinni:

„Síðustu daga hafa leiðtogar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs rætt sín á milli um möguleika á myndun ríkisstjórnar þessara flokka. Eftir samráð við þingmenn og aðra í röðum flokkanna hafa formenn þeirra tjáð mér að þeir séu reiðubúnir til formlegra viðræðna og samninga um ríkisstjórnarsamstarf, gerð stjórnarsáttmála og skipan ráðherraembætta.

Þær viðræður munu hefjast nú þegar og er þess að vænta að undir lok vikunnar liggi fyrir hvort þær skila tilætluðum árangri.“