Stjórn Klakka hefur ákveðið að mæla með því við hluthafa félagsins að fyrirhugaðar kaupaukagreiðslur, sem hluthafafundur samþykkti á mánudag, verði dregnar til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Ástæðan fyrir ákvörðuninni eru hin hörðu viðbrögð sem kaupaukagreiðslurnar hafa vakið hjá almenningi," segir í tilkynningunni. „Stjórnin hefur hlýtt á þær athugasemdir sem fram hafa komið og og telur að óhjákvæmilegt sé að bregðast við til að skapa traust í garð félagsins. Slíkt traust sé enda grundvallaratriði fyrir alla sem stunda viðskipti á Íslandi.

Stærsta eign Klakka er Lykill, sem hefur verið umsvifamikið í fjármögnun bifreiða- og atvinnutækja hér á landi á síðustu árum. Vill stjórn Klakka með þessari ákvörðun stuðla að því að friður geti ríkt um Lykil og þannig hámarkað virði félagsins í þágu allra hluthafa."