Aðeins tvö félög lækkuðu í viðskiptum dagsins. Úrvalsvísitala kauphallarinnar hækkaði um 0,37% í viðskiptum dagsins.
Mest hækkaði verð á hlutabréfum í Eimskip eða um 3,99%. Næst mest hækkun var á bréfum TM eða 3,73% hækkun.
Mest velta var með bréf Marels en hún var 673 milljónir króna. Heildarveltan í kauphöllinni í dag nam rétt rúmum 3 milljörðum króna.
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,15%. Vísitala óverðtryggðra skuldabréfa hækkaði um 0,19% og vísitala verðtryggðra skuldabréfa hækkaði um 0,14%.