Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,78% í dag og endaði í 1,811 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,69% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,56% í viðskiptum sem hljóða upp á heila 2,5 milljarða króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 35,70 krónur. Velta með bréf Icelandair nam 60% heildarveltu hlutabréfa fyrir daginn.

Ástæða þess að Icelandair hækkaði svo mikið er líkast til sú að fyrirtækið birti uppgjör sitt fyrir árið 2015 nú á dögunum og lýsti þar góðum árangri.

Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 2,03% í 262 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 nemur þá 52,75 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga um 0,22% í 138 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Haga er þá 44,5 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Regins um 1,97% í 99 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 19,95 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmur 4,1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 7,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 4,1 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3% í dag í 6,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,5% í 1,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 4,9 milljarða viðskiptum.