Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent Héraðsdómi Reykjavíkur skriflegar athugasemdir í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Byko ehf. og Norvík hf. Málið varðar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í maí 2015 þar sem Norvík hf. var gert að greiða 650 milljóna króna sekt fyrir brot dótturfyrirtæki síns, Byko ehf., á samkeppnisreglum. Samkvæmt stofnuninni vekur málið vekur upp mikilvægar spurningar varðandi túlkun EES-réttar.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem taldi brot Byko ehf. ekki jafn alvarleg og Samkeppniseftirlitið, og taldi ekki sýnt fram á að brotið hefði verið gegn samkeppnisreglum EES-réttar. Lækkaði áfrýjunarnefndin því sektina í 65 milljónir króna. Í febrúar 2016 höfðaði Samkeppniseftirlitið svo mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem þess er krafist að Norvík hf. verði gert að greiða 650 milljóna króna sekt í málinu. Það er í því máli sem ESA leggur fram athugasemdir.

Athugasemdir ESA varða hvenær á að beita samkeppnisreglum EES-réttar (þ.e. þegar aðgerðir geta haft áhrif á viðskipti)  og um varnaðaráhrif sekta í samkeppnismálum. Samkeppnisyfirvöldum og dómstólum aðildarríkjanna er skylt að beita samkeppnisreglum EES-réttar þegar málsatvik falla innan gildissviðs EES-samningsins. Þeim ber einnig að tryggja að reglunum sé beitt af skilvirkni.

Þetta er í fyrsta skipti sem ESA sendir athugasemdir til íslensks dómstóls en stofnunin hefur í tvígang lagt fram athugasemdir fyrir norskum dómstólum. Athugasemdir ESA eru ráðgefandi fyrir dómstólinn.