Eignarhaldsfélag Special tours hefur keypt Whales of Iceland sem rekur hvalasýningu á Grandanum, og verða fyrirtækin hér eftir rekin sem systurfélög að því er fram kemur í tilkynningu frá Special tours. Félögin munu sameina krafta sína og veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu og aukna upplifun í tengslum við hvalaskoðun og aðra afþreyingu.

Whales of Iceland var að fullu í eigu ITF I, sjóðs í stýringu Landsbréfa, dótturfélags Landsbankans. Eftir viðskiptin verður sjóðurinn minnihlutaeigandi í eignarhaldsfélagi Special tours en Eyþór L. Arnalds áfram meirihlutaeigandi í gegnum fjárfestingarfélag sitt.

Special Tours er þjónustu- og markaðsfyrirtæki í ferðaþjónustu sem leggur áherslu á siglingar í afþreyingarskyni allt árið um kring. Félagið gerir út frá Gömlu höfninni í Reykjavík, sem er eitt vinsælasta svæði meðal ferðamanna í borginni, og býður meðal annars upp á hvalaskoðunarferðir, norðurljósaferðir á sjó, lundaskoðunarferðir og sjóstangaveiði.

Dótturfélag Special tours opnaði nýverið kaffihús og bistro við Gömlu höfnina undir merkjum Reykjavík Röst Bistro þar sem boðið er upp á gæða kaffi, áfenga drykki og léttar veitingar frá morgni til kvölds. Special tours hefur aukið vöruframboð og styrkt bátaflota sinn á undanförnum misserum. Árið 2016 keypti félagið skipið Lilju, 189 farþega útsýnisskip með mikinn ganghraða en félagið mun einnig taka við nýjum hraðskreiðum RIB bát fyrir áramót sem mun hefja siglingar vorið 2018.

Whales of Iceland er stærsta hvalasýning Evrópu og þar býðst gestum að fræðast um hvali innan um líkön af hvölum í fullri stærð. Sýningin var opnuð árið 2015 og hefur notið mikilla vinsælda jafnt meðal Íslendinga sem erlendra ferðamanna. Á sýningunni er boðið upp á leiðsögn þar sem gestum er gerð grein fyrir mismunandi tegundum hvala sem sést hafa við Ísland og sérkennum hverrar tegundar. Sýningin býður upp á gagnvirkt sýningarefni og geta gestir jafnframt skoðað lífríki sjávar í sýndarveruleika.