Wow air flutti 322 þúsund farþega til og frá landinu í ágúst eða um 42% fleiri farþega en í ágúst árið 2016. Þá var sætanýting Wow air 90% í ágúst í ár þrátt fyrir 48% aukningu á framboðnum sætum miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu.

Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 1.9 milljón farþega en það er 98% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

„WOW air flýgur nú til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku og hefur yfir að ráða einn yngsta flugflotann í Evrópu. Nýlega hófst áætlunarflug til Tel Aviv í Ísrael. Þá hefur WOW air einnig bætt við fimm nýjum áfangastöðum í Bandaríkjunum; Dallas, Cleveland, Cincinnati, St. Louis og Detroit og hefst flug þangað næsta vor,“ segir í tilkynningunni.