Fasteignaskattur er næst stærsti tekjuliður sveitarfélaga á eftir útsvari. Áætlað er að heildartekjur sveitarfélaga af fasteignaskatti verði 42 milljarðar króna á þessu ári og hafa þær hækkað mikið undanfarin ár samhliða hækkun húsnæðisverðs.
Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman 10 staðreyndir um fasteignaskatta:
- Fasteignaskattar hafa nærri tvöfaldast á 20 árum
- Fasteignaskattar eru næstum tvöfalt hærri að meðaltali en á Norðurlöndum
- Fasteignaskattar leggjast þyngst á atvinnuhúsnæði
- Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði eru oftast í lögbundnu hámarki
- Tekjur stærstu sveitarfélaga af fasteignaskatti aukast um 3,5 milljarða króna á milli ára
- Fasteignagjöld nærri fimmtungur af tekjum fasteignafélaga
- Fasteignagjöld eru nærri helmingur af rekstarkostnaði fasteignafélaga
- Stærstur hluti atvinnuhúsnæðis er í Reykjavík
- Skattbyrði á atvinnuhúsnæði í Reykjavík mun aukast um einn og hálfan milljarð króna
- Hætta á víxlverkun fasteignagjalda og leiguverðs
Samantektina í heild sinni má lesa hér.