Hagnaður Félagsbústaða hf, sem er hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, nam tæplega 8,2 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi, sem er aukning frá ríflega 7,1 milljarði á síðasta áriþ Miðast sú upphæð við að tekið er tillit til matsbreytinga á eignum félagsins, en hlutverk þess er að eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Rekstrarhagnaður félagsins nam hins vegar 438 milljónum króna, sem er 21,2% aukning frá sama tímabili í fyrra þegar hann nam 362 milljónum króna. Félagið á og rekur 1968 almennar leiguíbúðir auk 379 þjónustuíbúða fyrir aldraða ásamt 137 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, eða samtals 2.484 íbúðir í Reykjavík.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á tímabilinu námu 2.704 milljónum króna sem er 10,3% aukning tekna frá sama tímabili 2016 aðallega vegna hækkunar leigu um 5% þann 1. ágúst, verðlagshækkunar leigu og stækkunar eignasafnsins.

Rekstrargjöld námu samtals 1.447 milljónum króna og hækkuðu miðað við sama tímabil 2016 um 8,5%. Af einstökum rekstrarþáttum hækkaði rekstrarkostnaður fasteigna um 6,7%, viðhald og framkvæmdir um 8,7% og fasteigna- og brunabótaiðgjöld um 11,8%.

Rekstrarhagnaður Félagsbústaða hf. fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána og matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 12,4% miðað við sama tímabil 2016, úr 1.119 millj. kr. í 1.257 milljónir króna. Hrein vaxtagjöld námu 858 milljónum króna og jukust um 12,5% milli tímabila, vaxtaþekja rekstrarhagnaðar tímabilsins í ár var 1,55 miðað við 1,49 sama tímabil á fyrra ári.

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu eigna nam 438 milljónum króna á tímabilinu miðað við 362 milljónir fyrir sama tímabil 2016 sem er 21,2% hækkun hagnaðar. Verðbreyting lána nam samtals 426 milljónum á tímabilinu.

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við fasteignamat sem Þjóðskrá Íslands reiknar og tekur gildi í upphafi árs 2018, að teknu tilliti til 8,4% hækkunar á vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu frá febrúar 2017 til loka tímabilsins.

Matsbreyting fjárfestingaeigna félagsins nam 8.178 milljónum króna þann 30.09. 2017 en var 7.276 milljónir króna fyrir sama tímabil árið 2016. Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 8.190 milljón króna á tímabilinu en var 7.125 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.

Eignaaukningin 9,5 milljarðar frá áramótum

Heildareignir Félagsbústaða hf. 30.09.2017 námu 77,2 milljörðum króna og jukust um 9,5 milljarða króna á tímabilinu frá áramótum, eða um 14,0%. Matsbreytingar fjárfestingaeigna skýra eignaaukn-inguna að stærstum hluta.

Eigið fé félagsins nam 40,9 milljörðum.kr. þann 30.09.2017 og jókst um tæpa 8,2 milljarða kr. frá áramótum, eða um 25,0%. Eiginfjárhlutfall var 53,0% þann 30.09.2017 en var 48,3% í árslok 2016.

Fjárfestu fyrir tæpa 2,9 milljarða

Handbært fé frá rekstri nam 444 milljónum króna á tímabilinu 1.1.-30.09.2017 sem er um tæpum 176 milljónum króna meira en á sama tímabili árið á undan. Fjárfestingar á tímabilinu námu 2.857 milljónum króna miðað við 528 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru tæplega 1.583 milljónir króna samanborið við rúmlega 5 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Á tímabilinu 1.1. – 30.09. 2017 keypti félagið 34 íbúðir.