Fyrsta skrefið í átt að nýju leiðaneti Strætó og Borgarlínu hefur verið tekið með afnámi fimm strætisvagnaleiða, en í stað þeirra verður ein leið lengd og ein ný tekur við.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um er búist við að Borgarlínan svokallaða, sem fylgir Bus Rapid Transit hugmyndafræðinni sem tekin hefur verið upp víða um heim, eftir fyrirmyndinni, Curitiba borg í Brasilíu, muni kosta í framkvæmd hátt í 100 milljarða króna.

Í desember voru 12 skipaðir í hönnunarteymi kerfisins , þar sem ráðgjafar frá New York koma að því að fyrsta áfanga kerfisins þar sem strætisvagnar munu fara á sérakreinum upp í Ártún og í Hamraborg frá miðborg Reykjavíkur.

Rétt úr leiðum og gerðar beinni

Sem hluti af undirbúningi verkefnisins tók í dag nýtt og einfaldara leiðanet hjá Strætó í Hafnarfirði gildi og fór fyrsti vagninn, leið 19, í nýju leiðaneti frá Kaplakrika kl. 9.25 í morgun.

Leiðir 22, 33, 34, 43 og 44 munu við þessa breytingu hætta akstri. Ný leið 19 og lengri leið 21 munu leysa þær af hólmi. Með þessum breytingum er verið að rétta úr leiðum í takti við Borgarlínuverkefnið, gera þær beinni og stytta ferðatímann.

Stjórn Strætó bs. og Hafnarfjarðarbær samþykktu í fyrra breytingar á leiðanetinu innan sveitarfélagsins og tóku þessar breytingar gildi í dag. Um er að ræða fyrsta áfanga í hinu stóra Borgarlínuverkefni og spilar leið 1 þar stóran þátt, sem hefst og endar á Völlunum.

Fyrstu tveir áfangar Borgarlínu, græn og rauð leið
Fyrstu tveir áfangar Borgarlínu, græn og rauð leið
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Hér má sjá fyrstu tvo áfanga áætlaðrar Borgarlínu, svoallaðs BRT kerfis fyrir höfuðborgarsvæðisins, græn og rauð leið.

Á næstu árum munu almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu taka miklum breytingum. Stærstu umbótarverkefnin eru annars vegar uppbygging á Borgarlínu innviðum fyrir hraðvagnakerfi (BRT) og hins vegar endurskoðun á leiðaneti Strætó vegna uppbyggingar Borgarlínu þar sem þörf er á að aðlaga leiðanetið að Borgarlínu og nýta innviði hennar.

Þannig er ætlunin að almenningssamgöngukerfið virki sem ein heild. Með breytingunni verður ekið skv. 15 mínútna tíðni á annatímum og 30 mínútna tíðni utan annatíma. Tengingar við leiðir 1, 21 og 55 verða í Firði. Í stað þess að aka milli Fjarðar og Mjóddar verður ekið á milli Háholts og Mjóddar.

Borgarlína
Borgarlína

  • Hugmyndir um helstu meginleiðir Borgarlínunnar um höfuðborgarsvæðið þegar kerfið verður komið á

Hér má sjá frekari fréttir um áætlaða Borgarlínu eða Bus Rapid Transit sérakreinakerfi fyrir strætisvagna í borginni: