Ferðamannapúlsinn breyttist lítið í maí og stóð í 82,7 stigum af 100 mögulegum, en í apríl var einkunnin 83,2 stig. Í maí 2016 mældist hún 86,4 stig. Ferðamannapúlsinn er því marktækt lægri nú en fyrir ári síðan. Þetta kemur fram á vef Gallup .

Ferðamannapúlsinn er samstarfsverkefni Isavia, Ferðamálastofu og Gallup og byggja mælingar á netföngum ferðamanna sem fara í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Púlsinn byggir á spurningum sem varða heildaránægju, virði Íslandsferðarinnar, uppfyllingu væntinga, líkur á meðmælum og gestrisni.

Í maí var Ferðamannapúlsinn hæstur meðal Pólverja eða 88 stig. Þar á eftir koma Finnar með 86,5 stig og þá Þjóðverjar, Kínverjar og Norðmenn. Í maí var Ferðamannapúlsinn lægstur meðal ferðamanna frá Frakklandi og Bretlandi.

Umræðan um styrkingu krónunnar og neikvæð áhrif hennar á ferðaþjónustu og útflutning almennt hefur verið áberandi undanfarið. Samkvæmt Gallup hefur undirþátturinn sem snýr að því hvort Íslandsferðin hafi verið peninganna virði lækkað um tæp 7 stig síðastliðna 12 mánuði. Heildaránægja með Íslandsferð er hins vegar áfram góð og fólk er líklegt til þess mæla með landinu sem áfangastað.