Verð á hlutabréfum í Festi hækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 2,33% í 156 milljóna króna viðskiptum. Næstmest hækkun var hjá Eimskip og nam hækkunin 1,44% í 56 þúsund króna viðskiptum.

Sex félög lækkuðu á markaði í dag en mest lækkun var hjá Kvíku og nam hún 1,08% í 13 milljóna króna viðskiptum. Næstmest lækkun var hjá Iceland Seafood og nam hún 0,8% í 6 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins hækkaði um 0,43% en veltan á hlutabréfamarkaði í dag nam 682,1 milljónum króna.