Vörumerkjastofan brandr hefur ráðið til sín fimm nýja starfsmenn, einn framkvæmdastjóra og fjóra ráðgjafa. Fyrir utan að vinna að ráðgjöf í Íslandi hefur fyrirtækið markað sér sérstöðu erlendis undir nafninu Larsen Energy Branding sem eina ráðgjafafyrirtækið í heiminum sem hefur einbeitt sér að vörumerkjastjórnun í orkugeiranum. Þá heldur fyrirtækið ráðstefnur hér heima og erlendis undir vörumerkinu CHARGE. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Íris Mjöll Gylfadóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri CHARGE og mannauðsstjóri brandr. Íris hefur margra ára reynslu af stjórnun og verkefnastýringu og starfaði nú síðast sem verkefnastjóri fyrir fjártæknifyrirtækið Alva. Þar á undan stýrði hún einu stærsta upplýsingatækniverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi þegar hún bar ábyrgð á innleiðingu Íslandsbanka og Landsbankans yfir í nýtt innlána og greiðslu kerfi fyrir hönd Reiknistofu bankanna. Þar áður starfaði hún við verkefnastjórnun m.a. hjá Origo og Arion banka.

Ingólfur Örn hefur starfað í aljóðlegu umhverfi markaðsmála í 25 ár. Lengstum starfaði hann hjá Marel, fyrst innan sviðs vöruþróunar sem vöruhönnuður en um 22 ára skeið leiddi hann aljóðlega uppbyggingu markaðsstarfs hjá Marel. Hann hefur að auki komið að margskonar verkefnum á sviði vöruþróunar, stefnumótunar og sölumála. Árið 2018 venti Ingólfur kvæði sínu í kross og byggði upp markaðsmálin hjá nýsköpunarfyrirtækinu Kerecis áður en hann hóf störf sem ráðgjafi á sviði markaðsmála.

Rúnar Ómarsson hefur stýrt alþjóðlegum vörumerkjum um árabil. Hann var m.a. framkvæmdastjóri og einn stofnenda Nikita Clothing. Undanfarin ár hefur Rúnar starfað við ráðgjöf hjá ólíkum íslenskum fyrirtækjum, sem hafa átt það sameiginlegt að stefna á árangur á alþjóðlegum mörkuðum.

Stefán Atli Thoroddsen var stofnandi og framkvæmdastjóri Jungle Bar. Hann starfaði síðan sem viðskiptastjóri hjá Gallup á markaðsrannsóknasviði 2017-2018 og verkefnisstjóri hjá Já á vöru og viðskiptaþróunarsviði 2018-2019.

Viktoría Alfreðsdóttir starfaði sem einstaklingsráðgjafi hjá Sjóvá og íslenskukennari hjá Retor fræðslu. Hún er nýlega flutt aftur til Íslands eftir nám í Flórens á Ítalíu. Þar útskrifaðist hún með meistaragráðu í vörumerkjastjórnun með áherslu á tísku.