Stjórn P/F Magn hefur ráðið Finn Jakobsen, sem forstjóra P/F Magn, dótturfélags Skeljungs í Færeyjum. Hann tekur við starfinu af Hendrik Egholm lét af störfum í lok maí síðastliðnum en Johnni Poulsen gegndi stöðunni í millitíðinni.

Finn Jakobsen hefur lokið gráðu í rafmagnsverkfræði en hann hefur á síðastliðnum fjórum árum starfað sem tæknistjóri hjá P/F Magn. Þar áður starfaði Finn hjá SEV í nokkur ár, fyrst sem tæknistjóri en síðan sem rekstrarstjóri. Þá hefur Finn starfað hjá ráðgjafafyrirtæki í Danmörku á sviði rafmagnsverkfræði.

Í tilkynningu Skeljungs segir að sem forstjóri P/F Magn mun Finn halda áfram að styrkja félagið á orkumarkaðnum sem og leiða það áfram í umskiptum yfir í endurnýjanlega orkugjafa, helst má þar nefna rekstur vindmyllugarðs að Flatnahaga í Færeyjum.

„Margir hæfir umsækjendur sóttu um starf forstjóra félagsins og með það ríkir mikil ánægja innan félagsins en mikill áhugi var fyrir starfinu,“ er haft Jens Meinhard Rasmussen, stjórnarformanni P/F Magns, í fréttatilkynningu.

„Við teljum Finn hæfan í starfið og réttan aðila til þess að leiða félagið í komandi áskorunum og tækifærum. Sem tæknistjóri hjá P/F Magn hefur Finn átt stóran þátt í þróun grænna orkulausna fyrir félagið og þar að auki hefur hann víðtæka stjórnunarreynslu sem og mikla innsýn inn í rekstur félagins.“