Landaður afli íslenskra fiskiskipa í júlí var 94,6 þúsund tonn sem er 1% meiri afli en í júlí í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Botnfiskafli jókst um 11% eða tæp 4.000 tonn en samdráttur var um 2% í uppsjávarafla.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá ágúst 2018 til júlí 2019 var 1.081 þúsund tonn sem er 16% minna en fyrir sama tímabil ári áður. Afli í júlí metinn á föstu verðlagi var 2,6% meiri en í júlí 2018.