Umhverfisstofnun mun frá og með morgundeginum, 23. janúar, opna gönguleiðir á náttúruverndarsvæðinu Fjaðrárgljúfri. Svæðinu var lokað tímabundið vegna vætutíðar og ágangs. Nú eru aðstæður betri en eins og sjá má á mynd á vef stofnunarinnar , er þar nú frost og snjór.

Stofnunin vill beina því til gesta að notast alfarið við merktar gönguleiðir og fara aldrei yfir girðingar eða inn á svæði þar sem umferð er takmörkuð vegna viðkvæms gróðurs eða dýralífs segir jafnframt í tilkynningu um opnunina.

Fjarðárgljúfur hefur verið vinsæll ferðamannastaður, og varð hann enn vinsælli eftir birtingu myndbands með Justin Bieber sem náði mikilli útbreiðslu.