Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fjármálareikninga, sem Hagstofu Íslands birti í morgun, er áætlað að heildarfjáreignir innlendra aðila hafi numið 26.253 milljörðum króna við árslok 2018, eða rúmum 933% af vergri landsframleiðslu (VLF). Heildarskuldbindingar námu 26.116 milljörðum króna, eða 928% af VLF. Fjáreign innlendra aðila var því jákvæð um 136 milljarða í lok árs 2018, en var jákvæð um 117 milljarða króna árið áður.

Fjáreignir heimilanna stóðu í tæplega 7.213 milljörðum kr. og fjárskuldir í 2.167 milljörðum kr. í lok árs 2018, samsvarandi 257% og 77% af VLF. Heildar fjáreignir jukust um tæplega 4,4%, á meðan skuldir hækkuðu um rúmlega 7,6% milli 2017 og 2018.

Heildarfjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja námu um 4.081 milljörðum kr. og lækkuðu um 7,6% frá árinu 2017, en fjárskuldir stóðu í 7.736 milljörðum kr. og hækkuðu því um tæpt 1% á milli ára.

Fjáreignir fjármálafyrirtækja námu um 13.281 milljörðum kr. í lok árs 2018 og drógust saman um 0,6% á milli ára, en fjárskuldbindingar voru 14.215 milljarðar kr. og lækkuðu því um 1,7% á milli ára.

Í lok árs 2018 námu fjáreignir hins opinbera 1.586 milljörðum kr., eða sem nemur 56,4% af VLF og skuldir 1.990 milljörðum kr., eða 71% af VLF.

Fjármálaeignir erlendra aðila stóðu í 3.596 milljörðum kr. (128% af VLF) í árslok 2018 og skuldbindingar í 3.723 milljörðum kr. (132% af VLF). Fjáreignir hækkuðu um 9,1% og skuldbindingar um rúm 9,3% milli áranna 2017 og 2018.