Icelandair Group hefur gengið frá samningi við BOC Aviation um fjármögnun á fyrirframgreiðslum á Boeing 737 MAX flugvélum félagsins sem eru til afhendingar árin 2019 og 2020. Áætlaður afhendingardagur síðustu vélanna er í mars 2020. Samtals mun fjármögnunin nema um 200 milljónum dollara, eða um 23 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu. Icelandair áætlar að sjóðsstaða félagsins muni hækka um 160 milljónir dollara í kjölfar samningsins eða sem samsvarar 19 milljörðum króna.

Til viðbótar hafa félögin samið um sölu og endurleigu á tveimur af þeim Boeing 737 flugvélum sem samningurinn nær yfir. Önnur þessara flugvéla verður afhent á árinu 2019 og hin árið 2020. Leigutími vélanna er 12 ár með kauprétti að loknum 30 mánaða leigutíma.