Tæplega 132 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi í nóvember síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 50 þúsund fleiri en í nóvember í fyrra. Aukningin nemur því 61,4 prósent milli ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ferðamálastofnun.
Þar kemur einnig fram að fjöldi ferðamanna hefur sexfaldast frá árinu 2010. Heildarfjöldi erlendra ferðamanna frá áramótum þessa árs er 1,64 milljónir eða 37,9% fleiri miðað við sama tímabil í fyrra, það er frá janúar til nóvember árið 2015.
Hvaðan koma þeir?
Algengustu gestirnir eru Bretar og Bandaríkjamenn. Bretar voru fjölmennastir eða 27,8% af heildarfjölda en fast á eftir fylgdu Bandaríkjamenn sem voru 23,2% - og því voru þessi tvö þjóðerni um helmingur ferðamanna. Hér er hægt að sjá hvaða ferðamenn komu til Íslands í mánuðinum:
- Bretar: 27,8%
- Bandaríkjamenn: 23,2%
- Þjóðverjar: 4,5%
- Kanadamenn: 4,1%
- Frakkar: 2,9%
- Svíar: 2,7%
- Kínverjar: 2,2%
- Pólverjar 2,2%
- Norðmenn: 2,1%
- Danir 2%
„Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í nóvember eða um 15.260 manns og voru þeir tvöfalt fleiri í ár en í fyrra. Bretum fjölgaði um 7.651 ferðamann í nóvember sem er 26,4% aukning frá því í fyrra, Kanadamönnum um 3.211 sem var 142,5% aukning frá því í fyrra og Þjóðverjum um 2.745 ferðamenn sem er nærri tvöföldun frá því í fyrra. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 54,6% af aukningu ferðamanna milli ára í nóvember,“ segir einnig í tilkynningu frá Ferðamálastofu.