Fjöldi íbúða í byggingu nú er yfir langtímameðaltali, en 4.323 íbúðir voru á byggingu hér á landi í lok síðasta árs, eða um 1.000 fleiri íbúðir en í lok árs 2016. Íbúðaverð á landsbyggðinni hefur hækkað um 22,2% undanfarna 12 mánuði og um 9% íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í febrúar voru yfir ásettu verði.

4.323 íbúðir voru í byggingu hér á landi í lok síðasta árs, sem eru ríflega þúsund fleiri íbúðir en voru í byggingu í lok árs 2016. Fjöldi íbúða í byggingu á landsvísu er nú yfir langtímameðaltali í fyrsta skipti síðan árið 2011, en frá árinu 1970 hafa að jafnaði verið tæplega 4.000 íbúðir í byggingu á landinu öllu að meðaltali.

Í fyrsta skipti síðan árið 2007 fjölgar íbúðum í byggingu utan höfuðborgarsvæðisins milli ára. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs í apríl.

Hraðari hækkun á landsbyggðinni

Undanfarna mánuði hefur íbúðaverð á landsbyggðinni hækkað töluvert hraðar en íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu. Tólf mánaða hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 10,6% miðað við vísitölu íbúðaverðs sem er reiknuð af Þjóðskrá Íslands.

Vísitala markaðsverðs íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni, sem er reiknuð af Hagstofu Íslands, hefur hins vegar hækkað um 22,2% undanfarna tólf mánuði, þar af um 10,6% á undanförnum þremur mánuðum.

Meira jafnvægi að nást

Á undanförnum mánuðum hefur hlutfall þeirra íbúðaviðskipta sem eiga sér stað yfir ásettu verði náð meira jafnvægi eftir tímabundna en mikla fjölgun íbúðakaupa yfir ásettu verði í fyrra.

Hlutfall viðskipta yfir ásettu verði hefur verið í kringum 10% undanfarna mánuði, sem er svipað og verið hefur að meðaltali síðan 2012. Meðalsölutími eigna á höfuðborgarsvæðinu lengdist hins vegar lítillega á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs og mælist nú svipaður eins og árin 2015-2016.

Leiguverð hæst í 101 Reykjavík

Leiguverð íbúðarhúsnæðis er nú að meðaltali um 2.000 krónur á landinu öllu, en 2.300 krónur á höfuðborgarsvæðinu. Póstnúmerið 101 er það hverfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem leiguverð er almennt hæst. Á landsbyggðinni er leiguverð hvað hæst á Akureyri.