Fleiri landsmenn eru hlynntir fremur en andvígir kjarasamningum þar sem meiri áhersla er lögð á stöðugt verðlag frelar en óhóflegar launahækkanir. Þetta kemur fram á heimasíðu Samtaka atvinnulífins þar sem sagt er frá könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir samtökin.

„Helmingur landsmanna er hlynntur kjarasamningum þar sem meiri áhersla er lögð á stöðugt verðlag og minni áhersla á launahækkanir en fjórðungur er andvígur slíkum samningum. Fjórðungur er hvorki hlynntur né andvígur. Niðurstöður könnunarinnar sýna afdráttarlaust að Íslendingar eru ekki tilbúnir  til að fórna ávinningi stöðugs verðlags með launahækkunum sem setja verðbólgu á skrið. Stytting vinnutíma er mikilvægasta málið í komandi kjaraviðræðum að mati Íslendinga en því næst koma hófstilltar launahækkanir,“ segir í fréttinni.

Í könnuninni kom jafnframt fram að tveir þriðju hlutar landsmanna hefðu áhyggjur af verðbólgu og einungis 10% hafa ekki áhyggjur af henni.