Niðurstöður atkvæðagreiðslna verkalýðsfélaga innan Alþýðusambandsins um Lífskjarasamninginn liggja nú fyrir. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins . Um 80% launafólks sem þátt tók í atkvæðagreiðslum studdu samninginn, 17% voru andvíg og 3% skiluðu auðu.

Lífskjarasamningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi stuðningi. Samtök atvinnulífsins samþykktu Lífskjarasamninginn með 98% greiddra atkvæða.