Þýska flugfélagið Germania ætlar að fljúga beint á milli Keflavíkur og Bremen sumarið 2017 líkt og í fyrra vegna frábærrar aðsóknar síðasta sumar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Frá miðjum júní fram í miðjan október flýgur Germania tvisvar í viku til Bremen á aðeins 3,5 klukkustundum. Verð á mann nemur 6.900 krónur á mann.